Síðasta útspil íþróttamafíunnar til að reyna að taka mig niður var síðasta vetur. Þá var sigað á mig sálfræðingnum Þóru Sigríði Einarsdóttur, eiganda sálfræðiþjónustunnar Domus Mentis , sem á ótrúlegan hátt fékk embætti samskiptarðagjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Þetta er kona sem hefur ítrekað sýnt, bæði í framkomu og vinnubrögðum, að hún hefur enga raunverulega þekkingu á íþróttaþjálfun eða stjórnsýslu — og vinnur ekki samkvæmt vísindalegum eða faglegum aðferðum sem eðlilegt er að ætlast sé til í svona viðkvæmu embætti.

Ég veit varla hvar ég á að byrja söguna um kynni mín af þessari konu. Það er eiginlega írónísk — og um leið sorglegt — að manneskja sem beitir aðferðum sem líkjast einelti skuli vinna að eineltismálum innan íþróttahreyfingarinnar.

Og þá vaknar spurningin: Hvert tilkynnir maður möguleg brot samskiptafulltrúa? Til mennta- og barnamálaráðuneytisins, sem ber ábyrgð á stöðunni. Það ferli hefur ekki gengið vel. Þess vegna hafa forsvarsaðilar Aþenu gripið til þess ráðs að fara með málið í fjölmiðla og á samfélagsmiðla.

Til að tryggja faglegt mat fengum við þrjá lögfræðinga til að fara yfir öll gögn málsins. Allir gáfu vinnubrögð samskiptafulltrúans falleinkunn með vísan til stjórnsýslulaga og grunnreglna málsmeðferðar.

Þar næst keyptum við óháða úttekt frá tveimur sálfræðiþjónustum, Vinnuvís og Fold, sem sérhæfa sig í viðkvæmum vinnustaðamálum, þar á meðal einelti. Okkur fannst mikilvægt að fá mat frá tveimur aðilum til að styrkja trúverðugleika úttektarinnar.

Til að gera langa sögu stutta: niðurstaðan var sú að vinnubrögð Þóru Sigríðar fengu svo alvarlega falleinkunn að mér, stjórn Aþenu og þeim sem stunda íþróttina innan félagsins er ekki stætt á öðru en að leita réttar okkar gagnvart ríkinu, sem ber ábyrgð á embættinu og þeim skaða sem það veldur.

Skýrslan um vinnubrögð samskiptafulltrúans var lokið 23. júní 2025 og send ráðuneyti sem viðbótargögn við formlega kvörtun sem barst ráðuneytinu 16. maí 2025. Ráðuneytið hefur enn ekki tekið málið alvarlega — þrátt fyrir að tímaramminn til að leita til Umboðsmanns Alþingis sé að renna út.

Ég ætla að láta þetta liggja í bili — en geri þessa skýrslu hér með opinbera (hlekkur), áður en við tökum umræðuna á næsta stig. Fyrst og fremst af virðingu við stúlkurnar og konurnar í Aþenu sem embætti samskiptafulltrúans hefur brotið á og vanvirt á marga vegu.

-Brynjar Karl